lífið er betra þegar við dönsum

Dans með Baddý eru líflegir og skemmtilegir danstímar fyrir konur og stelpur á öllum aldri – hvort sem þú hefur dansað áður eða ert einfaldlega til í að hreyfa þig, sleppa aðeins fram af þér beislinu og hafa gaman.

Hér snýst dansinn ekki um að gera allt fullkomlega heldur bara að finna gleðina og tilfinninguna sem fylgir því að hreyfa sig við góða tónlist og byggja upp sjálfstraustið. það er gott Að stíga aðeins út fyrir þægindarammann, finna lífskraftinn og leyfa sér einfaldlega að dansa.

Stemningin er hlý, afslöppuð og hvetjandi – staður þar sem þú getur mætt eins og þú ert, notið þess að hreyfa þig og farið út úr tímanum með aðeins meiri orku og bros á vör.

Komdu eins og þú ert. Dansaðu á þinn hátt. Og njóttu þess að vera til.

ath! það þarf ekki að skrá sig í tímana, bara mæta á staðinn!

af hverju að dansa eins og einhver annar þegar þú getur dansað eins og þú sjálf

hvernig dans?

Í hverjum danstíma lærum við nýja og aðgengilega dansrútínu þar sem við blöndum saman ólíkum stílum – meðal annars commercial, latin, jazz funk, jazz, disco, reggeaton og hip hop. ég auglýsi þema og lag vikunnar fyrirfram á instagram Rútínurnar geta verið krefjandi, en alltaf samdar með það í huga að hægt sé að læra þær og dansa yfir á klukkustund.

mér finnst mikilvægt að tímarnir séu fjörugir og upplífgandi og ég reyni að velja lög og semja dansa sem falla inn í það.

hvar og hvenær dönsum við?

LAUGARDAGAR KL. 10

hjarðarhagi 47 - gengið inn baka til

dansverkstæðið

The dance space rvk

mánudagar kl. 20.00

höfðabakki 3 - sama hús og fætur toga

HREYFISTJÓRN
akranesi

fimmtudagar kl. 18.00

suðurgata 126, akranesi

komdu að dansa

komdu að dansa